Knattspyrnufélagið Víðir Garði
Könnun
Hvernig líst þér á komandi sumar
Mjög vel
3 atkvæði

Vel
5 atkvæði

Allt í lagi
1 atkvæði

Veit ekki
1 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 10
21.05.2011 19:07:12 / Gulli

Fyrsti leikur sumarsins í deild.

Fyrsti leikur Víðis í 3.Deild fór fram í dag. Víðir tók á móti Vængjum Júpiters á Garðsvelli í ágætis veðri þó vindur hafi verið nokkur. Leikurinn var nokkuð skemmtilegur þrátt fyrir vindinn og mátti sjá ágætis takta í liði Víðis og gefur góðan þef af því sem koma skal í sumar. Staðan í hálfleik var 1-0 fyrir heimamönnum og gat hæglega verið meiri. Í seinni hálfleik fóru hlutirnir að rúlla og leikurinn endaði 5-1 fyrir Víði. Mörk Víðis sköruðu í réttri röð: Magnús Ólafsson 15mín, Davíð Hallgrímsson 57mín, Eiríkur viljar kúld 64,76,80 mín. 

Næsti leikur er einnig heimaleikur og fær þá Víðir í heimsókn Augnablik þann 27 Maí kl 20:00.

ÁFRAM VÍÐIR !

» 25 hafa sagt sína skoðun

13.03.2011 13:09:07 / Gulli

Úrslit lengjubikars

Laugardaginn 12.mars sl spilaði víðir gegn árborg í lengjubikarnum og fór leikurinn framm í reykjanseshöllinni, Víðir vann leikinn 1-3. Þeir sem skoruðu fyrir víðir hétu Magnús Ólafsson, Davíð Örn Hallgrímsson og Hákon Stefánsson. Þess má geta að allir þessir leikmenn teljast nýjir þar þeir magnús og davíð komu til liðs við víðir núna í mars frá reynir sandgerði og hákon kom frá keflavík í nóvember sl.

» 24 hafa sagt sína skoðun

13.03.2011 12:54:23 / Gulli

Sjö leikmenn í Víði (Staðfest)

Víðir Garði fékk góðan liðsstyrk fyrir helgi en félagið krækti þá í sjö nýja leikmenn.

Rúnar Dór Daníelsson er kominn aftur í markið hjá Víði eftir að hafa leikið átta leiki með Grindvíkingum í Pepsi-deildinni í fyrra.

Davíð Örn Hallgrímsson, Magnús Ólafsson og Ólafur Ívar Jónsson eru einnig komnir til Víðis frá nágrönnunum í Reyni Sandgerði.

Magnús og Ólafur Ívar eru báðir miklir reynsluboltar en þeir hafa leikið með Reynismönnum undanfarin ár.

Miðjumaðurinn Gunnar Hilmar Kristinsson kemur til Víðismanna frá ÍR sem og Atli Þór Jóhannsson auk þess sem Ómar Þröstur Hjaltason kom til félagsins frá Njarðvík.

Heimild: http://fotbolti.net/fullStory.php?action=viewStory&id=105467


» 23 hafa sagt sína skoðun

10.03.2011 17:47:33 / Gulli

Aðalfundurinn og leikur á laugardag 12.mars

Aðalfundur Víðis var haldin 28.Feb sl, Ein breyting varð á stjórn knattspyrnufélags en Friðrik Alexandersson gekk úr stjórn og inn í hans stað kom Jón Ragnar Ástþórsson.

Á laugardaginn næsta 12.mars verður leikur Víðis og Árborgar í Reykjaneshöllinni kl 16:00. Þetta er fyrsti leikur víðis í lengjubikarnum. Mætum sem flest og styðjum við strákana.

Ég fæ svo vonandi fregnir fljótlega af leikmönnum liðsins sem koma til með að spila með víðir í sumar.

Áfram Víðir.

» 23 hafa sagt sína skoðun

19.02.2011 21:45:39 / Gulli

Aðalfundur Víðis

Aðalfundur Víðis 2010

Aðalfundur Víðis verður haldinn þann 28.febrúar kl 20:00 í Víðishúsinu

1.Venjuleg aðalfundarstörf

2.Önnur mál
 

Hvetjum alla bæjarbúa til að koma og kynna sér starf og stöðu íþróttafélagsins hér í bæ.

Stjórn Víðis.


*Tekið af aðalheimasíðu Víðis


» 21 hafa sagt sína skoðun

19.02.2011 21:31:35 / Gulli

Þjálfaramál og annað.

Jæja, Löngu kominn tími til að skrifa eitthvað hérna,,, Enda er þessi síða heimsótt margoft á dag.

Kannski best að byrja að uppfæra þjálfaramálin, En eins og kannski flest allir vita nú orðið þá framlengdi ekki Njáll, eða var ekki framlengd við hann. Brynjar nokkur Gestsson hefur verið ráðinn þjálfari liðsins fyrir komandi átök sumarsins í A.riðli 3.deildar. Ég veit ekki nánari deil á þessum ágæta manni annað en það sem ritað er á nýju Víðis-síðunni.

En eins og flestir alvöru stuðningsmenn Víðis vita þá féll liðið úr 2deild sl sumar og mun það því spila eins og fyrr segir í A.riðli 3.deildar. Fyrsti leikur sumarsins í deildinni er heimaleikur þann 20.Maí gegn Vængjum júpiters samkvæmt heimasíðu knattspyrnusambandi íslands. Að mér vitandi er ekki búið að opinbera liðsmenn liðsins fyrir sumarið en það fer þó væntanlega að skýrast.

Liðin sem spila í A.riðli 3.deildar 2011
Augnablik                         frá Kópavogi
KB                                   frá Breiðholti
KFG                                frá Garðabæ
Markaregn                       frá Reykjavík
Stál-úlfar                          frá Kópavogi
Víðir                                frá Garði
Vængir Júpiters                frá Reykjavík
Þróttur Vogum                 frá Vogum Vatnsleysuströnd

Áfram Víðir 8)


» 20 hafa sagt sína skoðun

09.08.2010 17:51:15 / Eddi

Þjálfaraskipti

Á laugardaginn síðastliðinn komust stjórn Víðis og Jakob Már Jónharðsson að samkomulagi að Jakob hætti þjálfun félagsins.
Árangurinn hefur ekki verið uppá marga fiska og er augljóst að eitthvað varð að gerast.
Við hér á síðuni þökkum Jakobi fyrir samstarfið og óskum honum alls hins besta í því sem hann tekur sér fyrir hendur.

Sá sem tekur við liðinu er hinn frábæri karakter Njáll Eiðsson en hann er ekki að taka við liðinu í fyrsta skipti því hann hefur þjálfað hér áðuren hann hefur verið í fríi frá þjálfun frá því í haustið 2009 er hann hætti með Hött frá Egilstöðum. Bjóðum við Njál velkomin til starfa.

» 2 hafa sagt sína skoðun

09.08.2010 17:46:14 / Eddi

Ný heimasíða Víðis

Nú hefur verið opnuð ný opinber heimasíða hjá Víðir. Mæli ég með því að þið kíkið á hana :)

http://www.vidirgardi.is

Með kveðju,
Eddi

» 23 hafa sagt sína skoðun

23.06.2010 05:52:54 / Gulli

Sólseturshátíðarleikur!

Föstudaginn 25.Júní næstkomandi kl 20:00 tekur víðir á móti hamar frá hveragerði. Þetta er fín viðbót við helgina en þá er einmitt sólseturshátíðinn mikla haldin. Víðir er 1.stigi á eftir hamar í deildinni og því má segja að liðinn séu á svipuðu reki hvað styrkleika varðar ef marka má stöðunna þeas! Litill fugl hvíslaði að mér að þetta yrði marka leikur mikill og því um að gera að mæta og fagna góðum sigri!!!!!

Mætum á völlinn og hvetjum okkar menn til dáða!


» 25 hafa sagt sína skoðun

02.06.2010 20:31:17 / Gulli

Stórir leikir framundan.!

Jæja góðir hálsar.. það er hörku prógram framundan, Stór leikur í Visabikarnum á morgun,(fimmtudag kl 19:15) þegar Víðir tekur á móti Fylki úr árbænum, eins og allflestir vita leika fylkismenn í pepsi-deildinni og má því búast við erfiðum heimaleik og verða víðismenn að spila sinn allra besta bolta og fá góðan stuðning frá áhorfendum ef vinna á þennan leik og tryggja sér sæti í 16.liða úrslitum bikarsins. Á sunnudag kl 14:00 heimsækjum við svo nágranna félag okkar Reynir úr Sandgerði þar sem búast má við hörku spennandi leik. Bæði lið eru með 3.stig eftir fyrstu 3.umferðar og hafa unnið sitthvorn leikinn ásamt því að tapa tveimum. Það væri því sætur sigur að sigra sandgerðingana og henda sér uppfyrir þá þó ekki nema um skamma stund, Sandgerðingum var spáð 1.sæti í sumar í 2.deild og má því segja að tímabilið fari ekki vel af stað hjá þeim enn sem komið er og kærkomið að reyna að nýta sér það.
ÁFRAM VÍÐIR OG MÆTUM VÖLLINN :)

» 23 hafa sagt sína skoðun

28.05.2010 22:03:25 / Gulli

VÍÐIR-VÖLSUNGUR KL:14:00 LAU 29.MAÍ

Víðis menn taka á móti Völsungi frá Húsavík Laugardaginn 29.Maí kl 14:00.
Víðis menn sitja á botni deildarinnar(12.sæti)með 0.stig eftir að hafa tapað báðum leikjum í byrjun deildar og er því ekki seinna að vænna að fara að hala inn stigum ef við ætlum okkur ekki að vera í basli í sumar. Völsungs menn sitja í 9.sæti eftir 1.tap og 1.jafntefli með 1.stig, og verður þetta því án vafa hörku leikur sem fer fram á Garðsvelli á morgun(laugardag) Spáð er ágætis veðri svo um að gera að fjölmenna á völlinn og styðja við bakið á strákunum og hvetja liðið áfram.
ÁFRAM VÍÐIR!


» 20 hafa sagt sína skoðun

21.05.2010 12:07:49 / Gulli

Afturelding-Víðir í kvöld.

Víðir sækir Aftureldingu heim í kvöld á Varmárvöll kl: 20:00 (http://ja.is/kort/#q=N1%20mosfellsb%C3%A6&x=368926&y=409916&z=9 /// farið útur hringtorginu við N1 og fyrstu beygju til hægri og þá ætti þetta að finnast) þetta verður fyrsti heimaleikur hjá gestgjöfunum frá mosó svo að það má búast við fjölmenni á vellinum í kvöld. Afturelding tapaði sínum leik í fyrstu umferð líkt og Víðir gerði, svo bæði lið reyna eflaust að krækja í sinn fyrsta sigur í deildinni í kvöld. Vonandi að sem flestir garðsmenn komist á leikinn og styðji við sína menn. Áfram Víðir!!!!

» 24 hafa sagt sína skoðun

18.05.2010 23:49:23 / Gulli

VÍÐIR-ÍH Vísabikar

Víðis menn unnu góðan 2-1 sigur í kvöld er þeir tóku á móti ÍH í 2.umferð Vísabikarsins á Garðsvelli en leikurinn hófst kl 19:00 Rigning og smá rok var í Garðinum að vanda er leikurinn var flautaður á sem fór ágætlega af stað, Og mátti sjá framför á spilamennsku Víðis frá síðasta leik.
Víðismenn skoruðu fyrsta markið á 20mín, og var þar að verki Garðar Eðvaldsson er hann tók boltann niður með brjóstkassanum og setti hann svo laglega í netið og staðan orðinn 1-0 fyrir heimamönnum! Víðismenn voru meira sannfærandi það sem eftir lifði hálfleiks og átti skilið að bæta við marki ef eitthvað var. Seinni hálfleikur fór ágætlega af stað og var ekki svosem mikið um að vera nema barningur sitt á hvað þar til seinna mark Víðis kom en það skoraði Darko Milojkovic á 81 mínútu en Darko kom inná aðeins 3mínútum áður og var því ekki lengi að stimpla sig inn.Mikael Nikulásson þjálfari ÍH fékk svo að yfirgefa völlinn eftir samskipti sín við aðstoðardómara leiksins en dálítill pirringur var kominn í gestaliðið. ÍH menn tóku þó aðeins við sér eftir seinna markið hjá Víðir og sóttu stíft og skilaði það árangri þegar 2 mínútur voru komnar yfir venjulegan leiktíma þegar að Guðjón Þórunnarson skoraði frammhjá Bojan í markiverði Víðis. Enduðu leikar því 2-1 og Víðismenn komnir áfram í 32-liða úrslit Vísabikarsins annað árið í röð.

» 22 hafa sagt sína skoðun

14.05.2010 17:43:13 / Eddi

Íslandsmótið hefst.

Á morgun Laugardaginn 15.maí verður flautað til leiks í 2.deild karla í knattspyrnu. Að þessu sinni hefja Víðismenn leik á heimavelli og eru það Siglfirðingar og Ólafsfirðingar sem mæta með sameiginlegt lið sitt KS/Leiftur í Garðinn.

Víðismenn eru með gjörbreytt lið frá því í fyrra og hafa 24 leikmenn skráð sig í Víðir, þetta verður að teljast veruleg breyting og má þar nefna að andstæðingar Víðis á morgun hafa aðeins fengið til liðs við sig 12 leikmenn og miðast þetta við frá 1.september 2009.

Víði er ekki spáð góðum árangri í sumar af forráðamönnum og þjálfurum liðanna í 2.deild, liðið var sett þar í 9.sæti deildarinnar, en ég er viss um að leikmenn Víðis og þjálfarar vilja eyðileggja þessa spá með mun betri árangri. En ef góður árangur á að nást þarf góðann stuðning, þess vegna hvet ég alla knattspyrnuáhugamenn að fjölmenna á leikinn á morgun, því ég hef heyrt það að búist er við að stuðningsmenn KS/Leiftur ætli að fjölmenna á Garðsvöll.

Víðir lék síðustu helgi í Visabikar karla og sigraði þar lið Vængja Júpíters 4-2 með mörkum frá Róberti Erni Ólafssyni, Georg Siguðurðssyni, Þorsteini Þorsteinssyni og Reyni Þór Valssyni. Liðið mætir því liði ÍH í 32-liða úrslitum, en liðsmenn ÍH gerðu sér lítið fyrir og sigruðu nágranna okkar í Sandgerði.

En leikurinn á morgun hefst klukkan 14:00 og hvet ég alla til að mæta.
Dómari leiksins verður Sigurhjörtur Snorrason og honum til aðstoðar verða Ásgeir þó Ásgeirsson og Einar Ingi Jóhannsson en eftirlitsmaður á vegum KSÍ er Arnar S. Guðlaugsson.

Með kveðju,
Eddi

» 25 hafa sagt sína skoðun

04.05.2010 08:41:36 / jakobmar

Stuðningsmannakvöld Víðis.Kynning á Leikmönnum og þjálfurum.07.05.Kl.20.30.

Sælir Strákar.Það verður kynning á leikmönnum og Þjálfurum á föstudaginn.07.03.2010.í samkomuhúsinu í Garði.Kl.20.30
Þið þurfið að gera prófíl um sjálfann ykkur,Nafn: Aldur: Staða á velli: Maki/foreldrar: Áhugamál: Tenging ykkar í garðinn:Lið sem þið hafið spilað með.Lið í enska boltanum.Sendið prófílinn ykkar ásamt passamynd ef þið eigið á gisli.heidarsson@simnet.is annars verður tekinn mynd af ykkur í dag á æfingunni.Hver og einn þarf að koma með 2 rétti með sér,helst
einn heitann og einn kaldann,Hver og einn leikmaður þarf að koma með sér minnst 2 stuðningsmenn mega vera fleirri,td mömmu og pabba nú eða vini og vandamenn.stuðningsmennirnir gæða sér síðann á herlegheitunum meðann dagskráinn gengur, og að sjálfsögðu verður til sölu guðaveigar til að skola öllu niður :)



» 20 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 20
Heimsóknir
Í dag:  259  Alls: 201319
Klukkan